FJALLASÓL
Skilmálar
Bókun ferða og breytingar
Þátttökugjald skal greiða á vefsíðu Fjallasólar um leið og bókað er. Fjallasól áskilur sér rétt til að aflýsa ferð/námskeiði ef ekki næst lágmarks þátttökufjöldi eða af öðrum ástæðum t.d veðri. Sé ferð/námskeiði aflýst er þátttökugjald endurgreitt að fullu. Fjallasól áskilur sér rétt til að gera fyrirvaralaust breytingar á auglýstri ferð eða námskeiði.
Fjallasól áskilur sér rétt til leiðréttinga á verði ferðar eða endurgreiðslu ferðar í tilfellum þar sem rangt verð birtist vegna villu í uppsetningu eða af öðrum tæknilegum ástæðum. Ennfremur áskilur Fjallasól sér rétt til þess að breyta verði ferðar vegna breytinga á eftirtöldum verðmyndunarþáttum:
- Flutningskostnaði, þar með töldum eldsneytiskostnaði.
- Sköttum eða gjöldum fyrir tiltekna þjónustu
Ferð sem er að fullu greidd tekur þó ekki slíkum verðbreytingum.
Fjallasól tekur enga ábyrgð á þeim kostnaði sem til kann að falla vegna ófyrirsjáanlegra breytinga á samgöngum, gistingu eða öðru slíku.
Afbókunarskilmálar
Ef ferð/námskeið er afbókað með meira en 2 vikna fyrirvara fæst það endurgreitt að fullu (að frátöldu staðfestingargjaldi).
Ef ferð/námskeið er afbókað með 1-2 vikum fyrir brottför fæst 50% af lokagreiðslu endurgreidd.
Ef ferð/námskeið er afbókað með 1 vikna eða styttri fyrirvara fæst það ekki endurgreidd.
Staðfestingargjöld eru óendurgreiðanleg nema að Fjallasól felli ferð niður.
Þátttökugjald í námskeiðum eða hópastarfi fæst ekki endurgreitt eftir að starfið hefst. Að öðru leyti fylgir það afbókunarskilmálum hér að ofan.
Ábyrgð og tryggingar
Þátttakendur í ferðum og námskeiðum Fjallasólar eru á eigin ábyrgð. Þátttakendum ber að fara eftir leiðbeiningum fararstjóra og er bent á að áhætta felst í að stunda fjallgöngur og aðra útivist. Fjallasól tekur ekki ábyrgð á slysum, heilsubresti né farangri viðskiptavina. Þátttakendur eru ekki tryggðir í ferðum/námskeiðum með Fjallasól og eru hvattir til að snúa sér til tryggingafélags síns og kaupa þar viðeigandi tryggingar.
Birting myndefnis
Með þátttöku í ferðum og námskeiðum Fjallasólar samþykkja þátttakendur að Fjallasól sé heimilt að taka ljósmyndir og myndbönd af þátttakendum til að nota í prentmiðlum, á heimasíðu og samfélagsmiðlum. Þátttakandi getur þó ávallt hafnað birtingu myndefnis af sér með því að senda póst þess efnis á fjallasol@fjallasol.is
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.